Tríó Sól hóf samstarf sitt í Kaupmannahöfn árið 2020 þar sem Emma, Sólrún Ylfa og Þórhildur stunduðu tónlistarnám við Det Kongelige Danske Musikkonservatorium. Hópurinn leggur ríka áherslu á samtíma- og
þjóðlagatónlist. Þar sem tónverkarófið fyrir þessa hljóðfærasamsetningu er heldur takmarkað hefur tríóið skapað sér eigin vettvang fyrir nýsmíðar með samstarfi við tónskáld frá ýmsum löndum (sjá undir “samvinna”). Tríóið hefur einnig vakið athygli fyrir skapandi sviðsframkomu þar sem stapp, bogahreyfingar, söngur, tal og fleira hefur verið fléttað inn í hljóðfæraleikinn. Tríóið hefur tekið virkan þátt í kammertónlistarlífi bæði á Íslandi og í Danmörku.